Publier un stage
fr
Détails de l'offre
Emploi > Emplois > Management > Islande > Reykjavik > Détails de l'offre 

Ert þú upprennandi endurskoðandi

PwC
Islande  Reykjavik, Islande
Management, Danois, Islandais, Anglais
20
Visites
0
Candidats

Description du poste:

Line of ServiceAssurance

Industry/SectorNot Applicable

SpecialismAssurance

Management LevelAssociate

Job Description & SummaryViltu byggja upp sterkan grunn í endurskoðun, gagnagreiningu og reikningsskilum hjá alþjóðlegu fyrirtæki sem leggur áherslu á faglega starfsþróun?

Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingum til að bætast við endurskoðunarteymi PwC í Reykjavík frá hausti 2026. Starfið hentar vel þeim sem eru að ljúka háskólanámi og eru á leið í meistaranám, eru nú þegar skráð í meistaranám í endurskoðun og reikningsskilum eða hafa lokið gráðunni. Hjá PwC færðu tækifæri til að hefja starfsferil þar sem þú lærir með því að framkvæma, færð góða leiðsögn og vinnur með fjölbreyttum viðskiptavinum.

Starfs- og ábyrgðarsvið

Sem nýliði hjá PwC:

* tekur þú þátt í endurskoðun og gerð reikningsskila hjá fyrirtækjum, sveitarfélögum, stofnunum og öðrum lögaðilum

* greinir þú gögn, færslur og lykiltölur til að tryggja að fjárhagslegar upplýsingar séu rétt settar fram

* lærir þú að vinna með flókin viðfangsefni og draga ályktanir

* vinnur þú í teymum, verð tíma á skrifstofu viðskiptavina og byggir upp sterkt tengslanet

* færð þú innsýn í ólíkar atvinnugreinar og rekstrarumhverfi

Starfið er fjölbreytt, krefjandi og lærdómsríkt. Við bjóðum upp á stuðning til að læra og þroskast í starfi þar sem þú vinnur með færum sérfræðingum á sviði endurskoðunar.

Af hverju PwC?

Við viljum að þú vaxir í starfi og bjóðum því upp á:

* sterkt lærdómsumhverfi með mikla áherslu á þjálfun og kennslu

* mentor fyrir alla nýliða sem veitir þér sérstaka handleiðslu fyrstu mánuðina í starfi

* Regluleg snerpusamtöl með yfirmanni

* Árleg frammistöðusamtöl og markmiðasetning

* tækifæri til sérhæfingar í t.d. gagnagreiningu, innri stjórntækjum eða endurskoðun

* aðgang að alþjóðlegu fagneti PwC og fjölbreyttum námskeiðum

* vinnuumhverfi sem leggur áherslu á teymisvinnu, vellíðan og sveigjanleika

Við trúum því að besti árangurinn náist í öflugum hópi þar sem fólk getur bæði haft áhrif og þroskast faglega.

Hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem:

* hefur lokið BS-prófi í viðskiptafræði, hagfræði eða skyldum greinum (eða er að ljúka námi á árinu)

* nám eða stefna í meistaranám í endurskoðun og reikningsskilum

* hefur áhuga á endurskoðun og reikningsskilum

* er skipulagður, lausnamiðaður og hefur góða samskiptahæfni

* getur unnið bæði sjálfstætt og í teymi

* er forvitinn, með sterka aðlögunarhæfni og hefur metnað til að læra og þróast í starfi

Kostur en ekki skilyrði:

* reynsla úr bókhaldi eða skrifstofustörfum

* námskeið í gagnagreiningu, tölvunarfræði eða forritun

Starfsumhverfið og fríðindi

Hjá PwC starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga og við leggjum áherslu á:

* sveigjanlegan vinnutíma og möguleika á að samræma nám og starf

* frábært mötuneyti, búningsaðstöðu og aðstöðu til hreyfingar og hvíldar

* árlegan heilsuræktarstyrk og samgöngustyrk

* öflugt félagslíf og sterk teymismenning

* samvinnu milli starfshópa, sviða og deilda

* tækifæri til að vinna á PwC skrifstofum erlendis.

Þú verður hluti af teymi sem hvetur þig áfram, treystir þér og hjálpar þér að ná árangri.

Viltu vita meira?

Nánari upplýsingar veitir Katrín Ingibergsdóttir, mannauðsstjóri, á netfangið mannaudur@pwc.com

Tekið er á móti umsóknum á vef okkar www.pwc.is/storf og haft verður samband við umsækjendur jafnóðum og umsóknir berast.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.

Öll kyn eru hvött til að sækja um.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf haustið 2026.

Education (if blank, degree and/or field of study not specified)Degrees/Field of Study required:

Degrees/Field of Study preferred:

Certifications (if blank, certifications not specified)

Required Skills

Optional SkillsAccepting Feedback, Accepting Feedback, Accounting and Financial Reporting Standards, Accounting Policies, Active Listening, Artificial Intelligence (AI) Platform, Auditing, Auditing Methodologies, Client Management, Communication, Compliance Auditing, Complying With Regulations, Data Analysis and Interpretation, Data Ingestion, Data Modeling, Data Quality, Data Security, Data Transformation, Data Visualization, Emotional Regulation, Empathy, External Audit, Financial Accounting, Financial Audit, Financial Disclosure Report {+ 19 more}

Desired Languages (If blank, desired languages not specified)

Travel RequirementsNot Specified

Available for Work Visa Sponsorship?No

Government Clearance Required?No

Job Posting End Datemaí 17, 2026

Origine: Site web de l'entreprise
Publié: 20 Mar 2026  (vérifié le 15 Avr 2026)
Type de poste: Emploi
Secteur: Audit / Comptabilité
Langues: Danois, Islandais, Anglais
151.690 emplois et stages
dans 158 pays
S'inscrire
Entreprises
Offres
Pays